Skip to product information
Um þvert Grænland: Lífsbarátta og landkönnun með J.P. Koch & Alfred Wegener (Icelandic Edition)
Sale price
$31.99
Regular price $38.99
Ævintýralegur leiðangur og lífsbarátta í nýrri útgáfu af spennandi frásögn Vigfúsar Sigurðssonar af ferð hans með kapt. J. P. Koch, dr. Alfred Wegener og Lars Larsen í einu erfiðasta umhverfi veraldar í danska leiðangrinum, 1912–1913, til Dronning Louise Land í norð-austur Grænlandi og þvert yfir Grænlandsjökul til Kangersuatsiaq á vesturströndinni, sem þá hét Pröven.
Leiðangur þessi er óvenjulegur því leiðangursmenn nýttu íslenska hesta til þess að draga sleða með búnaði og birgðum frá ströndinni að jöklinum og þvert yfir hábungu Grænlands til vesturstrandarinnar. Jafnframt framkvæmdu þeir vísindalegar mælingar. Dr. Alfred Wegener hafði þá þegar birt vísindagreinar um landrekskenningu sína sem síðar átti eftir að valda straumhvörfum í skilningi á hreyfingu jarðskorpunnar.
Frásögn Vigfúsar er merkileg því almennt eru leiðangurssögur skrifaðar frá sjónarhorni leiðtoganna en ekki hins óbreytta leiðangursmanns. Vigfús veitir lesendum sérstaka innsýn í leiðangurinn og þá hörðu lífsbaráttu sem leiðangursmenn heyja til þess að komast lifandi frá ferðinni. Frásögnin er á köflum æði spennandi þar sem þeir lenda í erfiðum atvikum og hrakningum.
Vigfús hefur næmt auga fyrir náttúrunni og lýsingar hans bera þess merki. Hann segir frá atferli dýranna sem mæta þeim á leiðinni. Það er næsta víst að hesturinn Kári, hundurinn Glói og jafnvel litli snjótittlingurinn, sem fylgdi þeim yfir jökulinn, munu lifa áfram í minningu lesenda ekki síður en leiðangursmenn.
Fyrst er sagt frá æfingaferð leiðangursmanna sumarið 1912 þvert yfir hálendi Íslands og Vatnajökul frá Akureyri og til baka. Því næst segir frá siglingu leiðangursmanna síðsumars með fjölda íslenskra hesta, búnað og vistir til Danmerkurhafnar á norð-austurströnd Grænlands. Næst lýsir Vigfús hinni erfiðu ferð með búnaðinn og vistirnar með aðstoð hestanna inn til jökulsins og vetursetu leiðangursmanna. Um vorið leggja leiðangursmenn loks á hábungu Grænlandsjökuls. Ferðin reynist erfið og síðasti hlutinn, frá jökli til byggða á vesturströndinni, reynir á allt þeirra þrek og þrautseigju. Í lok bókarinnar er nýr hluti sem fjallar stuttlega um líf fjölskyldu Vigfúsar heima á Íslandi og einnig er minnst á seinni tvær ferðir Vigfúsar til Grænlands. Í bókinni eru myndir frá leiðangrinum, myndir af kortum úr upprunalegri útgáfu og nýjar skýringar. Þá er vísað á vefsíðu með fleiri ljósmyndum úr ferðinni. Í rafbókinni eru tenglar á vefsíður með meiri upplýsingum og á vef með gervihnattamyndum af þeim landsvæðum sem leiðangurinn ferðast um.